| Fundargerð - Fundur 484, Höfnin |
|
|
|
| Skrifað af: Sævar Ingi Sævarsson |
| Mánudagur, 10. október 2011 21:00 |
|
Fundur settur í Lindu steikhúsi kl. 08.02 af Erlingi formanni. Strax að lokinni setningu fundar var farið niður í Fiskitanga þar sem aðstaða Akureyrarhafnar er, Tók þar á móti okkur Pétur Ólafsson markaðsstjóri hafnarinnar. Boðið var upp á kaffi og kræsingar undir fyrirlestri fyrrnefnda. Sýnt var slideshow með árangri sem náðst hefur í markaðsetningu svæðisins með tilkomu betri aðstöðu fyrir stór farþegaskip ásamt uppbyggingu aðstöðu ferðalanga. Að lokinni kynningu hjá Hafnaryfirvöldum var farið í gamla RT salinn í Furuvöllum þar sem Elli og Jón Ingi gerðu grein fyrir fulltrúaráðsfundi nýliðna helgi. Þeir sögðu okkur frá svaðilför Jóns og fimmumanna áleiðis yfir Kjöl, sögðu okkur frá því að reynt hefði verið að setja á siðareglur v/þjófnaða á fulltrúaráðs funda, það var fellt. Af öðrum smærri málum fengum við einnig að frétta, það þolir víst ekki allt dagsljósið og verður því geymt í traustum gagna banka. |
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 03. nóvember 2011 10:06 |





