Forsíða Klúbburinn Fundargerðir Fundargerð - Fundur 483, Heims yfirráð eða Dauði
Fundargerð - Fundur 483, Heims yfirráð eða Dauði Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sævar Ingi Sævarsson   
Mánudagur, 26. september 2011 21:00

Fundargerð. 483

Fundur var settur kl. 08.04 í húsi Ölgerðar Egils Skallagrímssonar.
Mættir voru Erlingur, Jón Ingi, Haddur, Garðar, Siggi, Sævar og Villi
Gestur var varaformaður RT-5 Helgi Rúnar Bragason.


Eftir setningu fundar gaf Erlingur fundinn til stjórnanda fundarinns, hann varpaði honum aftur til Villa í þeim tilgangi að Gjaldkeri gerði grein fyrir útreikningum sínum v/Euromeeting nýliðið sumar. í ljós kom að mótið var heldur meira réttu megin en von var á og vakti það kátínu manna, farið var að ræða ráðstöfun fjárinns.
Kunngert var að Viðar hafði sagt sig frá klúbbnum, í bili að minnsta kosti.

Farinn var kynningarhringur þar sem gestur var í húsi.

Um hálf níu fengu menn 6 spurningar sem tengdust forskrift fundar og höfðu menn kvöldið til að koma með svör. Farið var síðan fótgangangandi í hús Sálarrannsóknarfélags Akureyrar við Strandgötu þar sem á móti okkur tók Halldór (Halldórsson) Transmiðill.
Halldór leiddi fundargesti að hinum ýmsu leiðum til tengingar við annað líf ásamt því að draga fram sögur af atburðum sem menn hafa lent í við viðlíka störf, hann svaraði auk þess fjölda spurninga úr sal af mikilli lipurð. Fyrir leikmann gæti maður ætlað að þarna færi viskubrunnur um annað líf.

Við kunnum Halldóri okkar bestu þakkir fyrir kvöldið. 

Um 20.40 var gengið til baka að húsi Ölgerðarinnar, þar voru úrslit úr spurninarleik kunngerð, fóru þeir Siggi og Garðar með sigur af hólmi jafnir af stigum. Hlutu þeir að launum kremkex (haustkex) og 1 Polar bjór.
Fundi slitið um 10.50



Ritari RT-7 



Síðast uppfært: Sunnudagur, 30. október 2011 15:23
 
Joomla template by a4joomla