|
Skrifað af: Haddur
|
|
Sunnudagur, 15. janúar 2012 12:52 |
|
Fundargerð fundur 489 Slökun
Fundur settur af Sævari kl. 20.00 í fjarveru formanns og varaformanns í húsakynnum Brekkuseli sem er gistiheimili á brekkunni á Akureyri Efnt var til vínsmökkunar og ostakynningar. Var fjöldinn allur af góðum rauðvínum í boði Ölgerðarinnar og ostar ættaðir frá kúm. Dreipt var á guðaveigum og ostar snarlaðir með, síðan var farið í pottinn þar sem menn léku á alls oddi og gerðu meðal annars engla í nýfallinn snjóinn. Um kl. 10 fóru menn að tínast heim á leið, þeir þyrstu sátu lítillega lengur. Eigandi af þessu fína gistiheimili er RT-5 meðlimurinn Jón Ísleifsson, kunnum við honum bestu þakkir fyrir aðstöðuna og liðlegheitin.
Mættir voru. Garðar, Guðmundur Fannar, Haddur, Hafþór, Jón Ingi, Sævar og Villi
Gestir/Nýliðar. Gestur Örn og Tómas
Ritari RT-7 Sævar Ingi Sverrisson |
|
Síðast uppfært: Sunnudagur, 15. janúar 2012 21:54 |
|
Fundargerð - Fundur 490, sveitaferð |
|
|
|
|
Skrifað af: Sævar Ingi Sævarsson
|
|
Laugardagur, 07. janúar 2012 21:14 |
|
Fundargerð. 490
Mættir til leiks í Vaglaskóg / Garðar, Tryggvi, Elli, Jón I, Villi, Haddur, Sævar, Siggi Nýliðar sem teknir voru inn þetta kvöld með tilþrifum, Steinn og Gestur Gestur frá RT-5 var Elli geisli Forföll. Haffi Efni fundara, gerð var grein fyrir fyrirhugaðri ferð til Tallin í Eistlandi og skrafað um kostnað og ferðamöguleika, rætt var um það hvernig skyldi úthluta úr sjóðum s.s. happadrætti síðustu ára ásamt afgangi frá Euromeeting. Elli formaður, leggur til að Brynjar og Mummi fái að vera að ganga að jöfnu við aðra að Euromeeting sjóð þar sem þeir stóðu sig vel við undirbúning á því. Það var samþ. Happadrætti frá því í fyrra, allir eiga að fá jaft úr þeim sjóð. Happadrætti frá árinu áður sem ekki hefur verið greitt út, á að renna til þeirra sem á það mót fóru. Sævar leggur til að nýliðar fái að ganga að jöfnu úr Euromeeting sjóð ef þeir fara.
Öll þessi atriði voru samþ. og skal miðast við það.
Fundi var slitið daginn eftir þegar að brottför var komið. Því miður voru tveir af félögunum, þeir Jón I og Villi ekki allan fundinn og tóku því ekki þátt í frágangi, undirritaður leggur til að siðameistari leggi á þá álögur vegna þessa.
Ritari RT-7 Sævar Ingi Sverrisson |
|
Síðast uppfært: Sunnudagur, 15. janúar 2012 21:43 |
|
|
Fundargerð - Fundur 488, Ratleikur með Berg |
|
|
|
|
Skrifað af: Sævar Ingi Sævarsson
|
|
Mánudagur, 21. nóvember 2011 21:00 |
|
Fundargerð. 488 Ratleikur með Berg
Mættir á þennan fund. Elli, Haddur, Villi, Garðar, Gummi, Jón Ingi, Siggi og Tryggvi Gestir/nýliðar. Steinn og Gestur
Fundurinn var haldinn á hótel KEA, fundur settur um kl. 20.00 Farið var í léttan ratleik/leik þar sem skipt var í þrjú lið og átti hvort um sig að dekka upp fimm rétta matarborð síðan var hlaupið um miðbæ og leystar þrautir á börum bæjarins.
Málefni stjórnar og félaga. Rædd var ráðstöfun euromeeting sjóðs og fulltrúaráðsfundurinn í Færeyjum. Kosið var um það hvort RT-7 væri tilbúið til að senda menn á fulltrúaráðsf. til Færeyja. Niðurstaða var að allir kosningabærir höfnuðu því að kosta það miklu af fjármunum klúbbsins í þessa einu ferð þó svo að áhveðið hefði verið áður að fara á þennan fund. Fannst mönnum kynning á kostnaði ekki nægilega góð eða og breyttar forsendur
Ritari RT-7 Sævar Ingi Sverrisson

|
|
Síðast uppfært: Sunnudagur, 15. janúar 2012 21:43 |
|
Fundargerð - Fundur 486 Pontufundur |
|
|
|
|
Skrifað af: Sævar Ingi Sævarsson
|
|
Mánudagur, 07. nóvember 2011 21:00 |
|
Fundargerð. 486
Hérna er um pontufundinn:
Fundur var settur "stundvíslega" í þelamörk. Mættir: Elli, Jón Ingi, Haddur, Tryggvi, Steinn, Gummi og Villi. Boðuð forföll: Sævar, Garðar, Siggi og Haffi.
Haldið var ofan í sund og þar var skipað í tvö lið, lið 1 sem skipaði Hadd og Villa og lið A sem skipaði Tryggva, Stein og Gumma. Málefnin voru fyrst jólagjafir og síðar sjálfsfróun undir lögaldri og voru lið með eða á móti. Fengu liðinn 10 mín til að undirbúa sig og svo 3 mín til að tjá sig. Lið 1 átti erfitt með að gera sig skiljanlega í orðum þar sem ræða þeirra fór fram undir yfirborði sundlaugarinnar en voru dómarar sammála um að líkamstjáning þeirra þótti mjög á móti jólagjöfum. Í seinni lið þótti mjög erfitt að sjá á Gumma að hann væri á móti enda ekki skrítið þar sem hann er sjóari. Eftir að bæði liðinn voru búinn að tjá sig var síðan farið í sundbolta. Lið A hafði þar sigur nokkuð örugglega þótt dómarar höfðu skipts á að veita þeim liðveislu með misgóðum árangri. Tryggvi nældi liðinu sínu í 3 auka stig enda stórglæsilegur með froskalappir og snorkl sett. Dómari dæmdi samt liði 2 sigur en þykir það víst að lið A var heldur stigahærra en Lið 1. Efir sundboltann voru teknar nokkrar freestyle ferðir niður rennibrautina og fékk Gummi klárlega eitt stig fyrir flestu og bestu ferðirnar. Eftir góða stundi í pottinum var svo haldið upp úr og notið veitinga og síðan fundi slitið. Ritiari fundsins vill samt koma á framfæri til siðameistara að það er örugglega allt í lagi að sekta formann fyrir að vera í sundskýlu sem var hugsanlega 3 númerum of lítil.
|
|
Síðast uppfært: Sunnudagur, 04. desember 2011 10:59 |
|