| 2. fulltrúaráðsfundur RTÍ í Fjarðarbyggð |
|
|
|
| Skrifað af: Haddur |
| Sunnudagur, 10. október 2010 17:47 |
|
Þrír félagar úr RT7 brugðu sér á 2.fulltrúaráðsfund RTÍ á Eskifirði um helgina. Skemmst er frá því að segja að þessi helgi var hin mesta skemmtun og skipulagning, hjá RT16 mönnum, var þeim til mikils sóma. Á föstudagskvöldinu var boðið til heljarinnar teitis í Randulfs Sjóhúsi. þetta party var svo gott, að þónokkur fjöldi var alls ekkert viss, daginn eftir, hvort þeir hefðu yfirleitt verið þar. Á laugardeginum var blásið til fundar í bongóblíðu og var ástand manna með besta móti. Um kvöldið var svo boðið í dýrindis veislu og að borðhaldi loknu var svo haldið til Reyðarfjarðar þar sem Stríðsárasafnið var skoðað og ýmislegt gert, svo að menn næðu sem best að lifa sig inn í þessa tíma. Að lokum var svo haldið á skemmtistaði bæjarins og þeir málaðir rauðir. Við erum ekki frá því að RT menn hafi jafnvel hlotið meiri hylli hjá kvenþjóðinni, heldur en hermennirnir sem þarna dönsuðu á ástandsárunum. |
| Síðast uppfært: Mánudagur, 11. október 2010 18:55 |




